Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
banner
   sun 07. júní 2026 19:24
Elvar Geir Magnússon
Búist við því að Messi komi við sögu gegn Íslandi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Heimsmeistarar Argentínu búa sig undir HM og unnu Hondúras 2-0 í vináttulandsleik um helgina. Lautaro Martínez skoraði úr vítaspyrnu og þá gerði Giuliano Simeone annað markið.

Lionel Messi, einn besti fótboltamaður sögunnar, var ónotaður varamaður en hann hefur verið að glíma við meiðsli og ekki æft að fullu.

Argentína mætir Íslandi í síðasta æfingaleiknum fyrir HM en hann verður spilaður í Auburn í Alabama klukkan 01:00 aðfaranótt miðvikudags. Búist er við því að Messi muni koma við sögu í þeim leik.

Lionel Scaloni landsliðsþjálfari Argentínu sagði fyrir leikinn gegn Hondúras að Messi, sem er 38 ára, væri á góðum batavegi eftir að hafa meiðst aftan í læri með liði sínu Inter Miami.

Hann myndi væntanlega koma við sögu í vináttulandsleikjunum, ef ekki gegn Hondúras þá myndi hann væntanlega spila gegn Íslandi.

Argentína verður með Alsír, Austurríki og Jórdaníu í riðli á HM í sumar.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner