Herbert Hainer, forseti Bayern München í Þýskalandi, segir að Real Madrid getur sleppt því að setja sig í samband við félagið vegna franska vængmannsins Michael Olise, enda mun það ekki skila neinum árangri.
Á dögunum var greint frá því að Florentino Pérez, forseti Real Madrid, ætlaði sér að leggja fram 150 milljóna evra tilboð í þekkta stjörnu í Evrópu.
Erlendir miðlar hafa sagt að leikmaðurinn sem um ræðir sé Michael Olise, sem átti stórkostlegt tímabil með Bayern München og var valinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar.
„Ef Florentino Pérez vill senda okkur tilboð í Olise, sem hefur ekki gerst til þessa, þá getur hann sparað sér ómakið. Michael Olise er leikmaður Bayern og með langtímasamning. Við erum ekki félag sem selur sína bestu leikmenn,“ sagði Hainer við BILD.
Áður hafa stjórnendur Bayern sagt að þeir myndu ekki einu sinni selja Olise þó 200 milljóna evra tilboð bærist, en allt er til sölu fyrir rétt verð.
Tíminn verður að leiða í ljós hvort Madrídingum takist að sannfæra Bayern um að selja, en í augnablikinu virðist heldur ólíklegt að Olise sé á leið til Real Madrid.



