Fotbolti.net
27.06.26 - 15:12
Brynjar Ingi Erluson

Tuchel leitar lausna - Voru það mistök að skilja Trent eftir?

Thomas Tuchel mun gera breytingar á liði sínu

Thomas Tuchel mun gera breytingar á liði sínu

Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel undir býr nú enska landsliðið fyrir lokaleikinn í riðlakeppni heimsmeistaramótsins, en þar þarf hann að takast á við alls konar áskoranir varðandi liðsval.
England mætir Panama í kvöld þar sem liðið getur tryggt sér toppsætið í L-riðli.

Búist er við einhverjum breytingum á byrjunarliðinu en erfitt er að segja til um hversu margar þær verða.

Vandræði eru í hægri bakvarðarstöðunni. Reece James er meiddur aftan í læri og missir af leiknum gegn Panama. Þá meiddist Tino Livramento á dögunum og yfirgaf hópinn en miðvörðurinn Trevoh Chalobah kom inn í hans stað.

Tuchel er vissulega með Djed Spence, Ezri Konsa og Jarell Quansah í hópnum en enginn þeirra er náttúrulega sókndjarfur hægri bakvörður. Slíkur leikmaður hefði getað nýst vel gegn lágvörn Panama.

Það mun líklega auka umræðuna um ákvörðun Tuchel að velja Trent Alexander-Arnold, leikmann Real Madrid, ekki í hópinn. Trent hefði hentað vel í leik sem þessum með sendingagæðum sínum og reynslu af því að spila gegn þéttum lágvörnum.

„Það er mjög eðlilegt að það sé erfitt fyrir okkur að brjóta niður lágvarnir. Við viljum vera virkir og gerðum nóg til að vinna gegn Gana. Við þurftum líka að gera mikið til að hafa stjórn á skyndisóknunum en í tvö skipti tókst okkur það ekki og í bæði skiptin skapaðist hætta.“

„Ég er ekki búinn að finna uppskriftina að þessu: 'Þeir gera þetta, við gerum þetta og þá verður allt í lagi'. Við munum reyna að finna virka og áræðna leið gegn Panama en við megum ekki vera heimskir eða barnalegir. Við getum ekki opnað okkur algjörlega, sent sjö leikmenn fram og varist með þremur. Það væri ekki nógu ábyrgt.“

„Við náðum ekki að skapa yfirtölu gegn Gana og mun líklega ekki gera það gegn Panama heldur,“ sagði Tuchel.

Hausverkur fyrir Tuchel

Declan Rice gæti einnig fengið hvíld. Hann hefur verið að glíma við meiðsli á mótinu og er einu spjaldi frá leikbanni. Marcus Rashford gæti hins vegar byrjað á vinstri kantinum í stað Anthony Gordon og þá er spurning hvort Tuchel haldi Harry Kane á toppnum til að reyna að koma honum í gang fyrir 32-liða úrslitin.

Kane átti afleitan dag í markalausa jafnteflinu gegn Gana. Hann mun líklega fá mínútur en Tuchel gæti einnig gefið annað hvort Ollie Watkins eða Ivan Toney stærra hlutverk.

England mætir Panama klukkan 21:00 en Gana og Króatía eigast við á sama tíma.
Trent var ekki valinn í landsliðið fyrir HM

Trent var ekki valinn í landsliðið fyrir HM

Canon

Mynd: EPA

Harry Kane átti ekki góðan leik gegn Gana

Harry Kane átti ekki góðan leik gegn Gana

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.