Fotbolti.net
27.06.26 - 15:43
Brynjar Ingi Erluson

Stæði ekki í markinu ef ekki væri fyrir fyrrverandi forsætisráðherrann

Zetterström var frábær gegn Japan

Zetterström var frábær gegn Japan

Canon

Mynd: EPA

Jacob Widell Zetterström átti flottan leik í 1-1 jafntefli Svíþjóðar gegn Japan í lokaumferð riðlakeppni heimsmeistaramótsins á dögunum. Það er þó ótrúleg fjölskyldusaga markvarðarins sem vekur ekki síður athygli.
Widell Zetterström er uppalinn hjá Djurgården en samdi við Derby County sumarið 2024.

Hann byrjaði mótið sem varamarkvörður Svía en fékk sæti í byrjunarliðinu eftir að Kristoffer Nordfeldt fékk á sig fimm mörk gegn Hollendingum.

Widell Zetterström kom mjög öflugur inn í liðið og átti meðal annars stórglæsilega vörslu undir lok fyrri hálfleiks. Sætið virðist nú vera hans og líklegt er að hann standi á milli stanganna gegn Frökkum í 32-liða úrslitum.

Hann hefði þó líklega aldrei orðið til ef ekki væri fyrir Olof Palme, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar. Aftonbladet greinir frá þeirri ótrúlegu sögu og er þar vísað í ævisögu Palme sem Henrik Berggren skrifaði.

Þannig er mál með vexti að amma Widell Zetterström, Jelena Rennerova, fæddist í þáverandi Tékkóslóvakíu. Palme var í Prag árið 1949, ári eftir valdarán kommúnista í landinu. Þar kynntist hann Jelenu, sem var ásamt bróður sínum hluti af lýðræðishreyfingunni og því undir smásjá lögreglunnar.

Palme vildi hjálpa Jelenu að komast úr landi og brá á það ráð að giftast henni. Aðeins nokkrum dögum síðar voru sett lög sem meinuðu tékkneskum konum, sem voru giftar erlendum mönnum, að fara úr landi.

Hún ferðaðist með Palme til Parísar og þaðan kom hann henni til Svíþjóðar. Þar lærði hún síðar læknisfræði áður en hún skildi við Palme og giftist Rolf Zetterström, sem var einnig læknir.

Þau eignuðust saman dótturina Jelenu, sem mörgum árum síðar eignaðist soninn Jacob Widell Zetterström, manninn sem stendur nú á milli stanganna hjá sænska landsliðinu.

Saga Palme er hins vegar flestum kunn. Hann varð síðar forsætisráðherra Svíþjóðar áður en hann var myrtur árið 1986. Morðið vakti mikinn óhug í Svíþjóð og málið er enn eitt það umtalaðasta í sögu landsins.
Olof Palme átti sinn þátt í að Zetterström sé í marki Svía í dag

Olof Palme átti sinn þátt í að Zetterström sé í marki Svía í dag

Canon

Mynd: Folke Hellberg

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.