Diljá í bikarúrslit - Íslendingaliðið fékk skell í Malmö

Diljá er komin í bikarúrslit

Mynd: Brann

Diljá er komin í bikarúrslit

Mynd: Brann

Diljá Ýr Zomers og stöllur hennar í norska liðinu Brann eru komnar í bikarúrslit eftir að hafa unnið 3-0 sigur á Viking í dag.
Landsliðskonan byrjaði í fremstu víglínu hjá Brann ásamt Brennu Lovera, sem var áður á mála hjá ÍBV og Selfossi.
Diljá fór af velli þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir, skömmu eftir að Brann hafði komist í eins marks forystu. Liðið bætti síðan við tveimur mörkum á fjórum mínútum á lokakaflanum.
Brann, sem er ríkjandi deildarmeistari, er þar með komið í bikarúrslit þar sem liðið mætir annað hvort Álasundi eða Stabæk.
Íslendingalið Kristianstad tapaði þá stórt fyrir Malmö, 6-0, í sænsku úrvalsdeildinni.
Linda Líf Boama var í byrjunarliði Kristianstad en Elísa Lana Sigurjónsdóttir sat allan tímann á bekknum. Alexandra Jóhannsdóttir var ekki með.
Malmö er í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig en Kristianstad er í sjötta sæti með 15 stig.