Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
banner
   sun 07. júní 2026 16:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Verðandi leikmaður Man Utd fer með Brasilíu á HM
Mynd: EPA
Ederson, miðjumaður Atalanta, hefur verið valinn í brasilíska landsliðshópinn fyrir HM sem hefst í vikunni.

Ederson kemur inn í hópinn fyrir Wesley Franca, leikmann Roma, sem meiddist í 2-1 sigri á Egyptalandi í æfingaleik í gærkvöldi.

Ederson er 26 ára gamall miðjumaður en hann er líklega á leið til Man Utd í sumar. Miðað við fréttir undanfarið hefur hann samþykkt fjögurra ára samning hjá Man Utd sem borgar um 35 milljónir punda fyrir hann.

Brasilía er í C-riðli á HM og mætir Marokkó, Haíti og Skotlandi. Fyrsti leikurinn verður gegn Marokkó þann 13. júní.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner