07.07.05 - 05:51
Jose-Karl Pierre-Fanfan til Rangers (Staðfest)




Jose-Karl Pierre-Fanfan hefur skrifað undir þriggja ára samning við skosku risana í Rangers. FanFan var á sínum tíma orðaður við Arsenal en hann stóðst læknisskoðun í gær og skrifaði undir samninginn í kjölfarið.
Hann kemur frá Paris St. Germain í Frakklandi og vann stuðningsmennina strax á sitt band með því að tilkynna það að hann neitaði tilboði frá Celtic. Kaupverðið á varnarmanninum fæst ekki gefið upp en áður höfðu Rangers fengið þá Brahim Hemdani og Ian Murray til sín á frjálsri sölu.
"Rangers höfðu virkilegan áhuga á mér og voru faglegri og ég er því virkilega ánægður með það að skrifa undir" sagði FanFan.
"Rangers höfðu virkilegan áhuga á mér og voru faglegri og ég er því virkilega ánægður með það að skrifa undir" sagði FanFan.
