Fotbolti.net
07.07.05 - 13:56
Magnús Már Einarsson

Vilhjálmur til Vasteras (Staðfest)

Vilhjálmur til Vasteras (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sænska 2.deildarliðið Västerås SK hefur keypt miðjumanninn Vilhjálm Ragnar Vilhjálmsson frá Víking R. Vilhjálmur sem er 27 ára hefur verið í láni hjá Víkingi Ólafsvík að undanförnu en hann er nú farinn til Svíþjóðar og hefur hann gert samning við Västerås SK út tímabilið til að byrja með.
Vilhjálmur sem er mikill spyrnusérfræðingur er með ákvæði í samningi sínum við Västerås að ef þeim lýst vel á hann geti samningurinn verið framlengdur.

Hann mun leika sinn fyrsta leik með Västerås á mánudaginn gegn Väsby United. Västerås er sem stendur í fimmtánda og næstneðsta sæti í sænsku 2.deildinni eða Superettan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.