Fotbolti.net
07.07.05 - 15:45
Örn Markússon

Norski boltinn: Todi Jónsson til Start (Staðfest)

Todi Jónsson

Todi Jónsson

Canon
Todi Jónsson, einn af bestu knattspyrnumönnum Færeyinga, hefur gengið til liðs við Start frá Kristjánsandi. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Start gerði Tódi samning við félagið út 2007. Hann kemur frá FC Kaupmannahöfn en þessi kraftmikli framherji hefur skorað 68 mörk í 208 leikjum í dönsku deildinni.
Það hefur annars verið heilmikið að gerast á markaðinum í Noregi eftir 1. júlí en þá varð aftur leyfilegt að kaupa og selja leikmenn. Norska úrvalsdeildin er nú hálfnuð, leikmenn í sumarfríi og sum liðanna reyna að bæta árangurinn með leikmannakaupum fyrir lokaátökin. Sérstaklega gildir þetta um fjögur efstu liðin: Start, Brann, Vålerenga og Viking. Kannski ekki skrítið að allt sé sett undir í ár enda virðist loksins komið að því að Rosenborg vinni ekki titilinn.

Vålerenga hefur líklega gengið lengst, a.m.k. fjárhagslega, og fest kaup á Tore Andre Flo og Magne Hoset. Þeir eru báðir klárlega með betri knattspyrnumönnum Noregs og hafa örugglega kostað talsverða peninga á norrænan mælikvarða en Vålerenga hefur lítið vilja tjá sig um þann hluta málsins.

Brann hefur fengið til sín Trond Fredrik Ludvigsen frá Bodø-Glimt en hann kostaði þó félagið lítið meira en flugfarið. Ludvigsen hefur lengi þótt meðal þeirra efnilegri í Noregi en verið einn af þeim mörgu knattspyrnumönnum sem aldrei ná að springa út. Brann veðjar á að nú sé rétti tíminn enda fór Ludvigsen mjög illa með varnarmenn Brann fyrr í sumar þegar Bodø-Glimt sigraði 3-2 á Brann Stadion.

Viking hefur einnig fjárfest, við fyrstu sýn í minni spámönnum, en Daninn Allan Gaarde skoraði þó á sunnudag sigurmarkið fyrir Viking gegn Aalesund með sinni fyrstu snertingu fyrir liðið. Það er Roy Hodgson sem þjálfar Viking og hann hefur verið að ná fínum árangri en liðið er sem stendur í 2.-4. sæti með 24 stig, líkt og Brann og Vålerenga, en Start leiðir með 30 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.