07.07.05 - 16:03
Magnús Már Einarsson
Bellamy til Blackburn (Staðfest)

Framherjinn Craig Bellamy hefur staðist læknisskoðun hjá Blackburn Rovers og samþykkt fjögurra ára samning við liðið. Bellamy kemur til Blackburn frá Newcastle og er kaupverðið talið vera rétt undir fimm milljónum punda.
Bellamy sem er 25 ára verður kynntur sem leikmaður Blackburn á blaðamannafundi á eftir en hjá liðinu hittir hann fyrir Mark Hughes fyrrum landsliðsþjálfara sinn hjá Wales.
Bellamy féll í ónáð hjá Graeme Souness stjóra Newcastle eftir að hafa deilt tvisvar við hann á síðustu leiktíð. Hann var síðari hluta leiktíðarinnar á láni hjá Celtic í Skotlandi og þeir vildu fá leikmanninn eins og Everton og Aston Villa einnig.