Fotbolti.net
07.07.05 - 20:58
Magnús Már Einarsson

Solari til Inter (Staðfest)

Solari fagnar marki.

Solari fagnar marki.

Canon
Argentínski kantmaðurinn Santiago Solari hefur staðist læknisskoðun hjá Inter Milan og gert þriggja ára samning við liðið. Solari sem hefur verið hjá Real Madrid undanfarin ár ku ekki kosta Inter mikið þar sem klásúla í nýjum samningi hans hjá Real sagði að hann mætti fara ódýrt ef hann spilaði ekki visst mikið með liðinu.
Solari sagði við komu sína til Inter í dag: ,,Inter er frábært félag. Ég mun gera það sem ég get til að gera mitt besta í Nerazzurri litunum. Roberto Mancini þjálfari hefur trú á mér því hann vildi virkilega fá mig.

Hann reyndi áður að fá mig þegar að hann var hjá Lazio fyrir tveimur árum. Við munum nú loksins vinna Scudetto (ítalska bikarinn) saman, ég get lofað stuðningsmönnunum því."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.