Fotbolti.net
07.09.26 - 22:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kane um Gullboltann: Ánægður að vera í baráttunni

Kane um Gullboltann: Ánægður að vera í baráttunni
Canon

Mynd: EPA

Það verður tilkynnt á morgun hverjir koma til greina að vinna Ballon d'Or gullboltann fyrir síðasta tímabil.

Harry Kane, framherji Bayern og enska landsliðsins, er talinn líklegastur til að vinna.
Mbappe eygir gullboltann - Þrír taldir líklegri til að fá hann
TENGT EFNI

Mbappe eygir gullboltann - Þrír taldir líklegri til að fá hann

Kane skoraði 61 mark í 51 leik fyrir Bayern sem vann tvöfalt í Þýskalandi. Þá skoraði hann sex mörk fyrir England á HM.

„Þetta er ekki í mínum höndum heldur kjósenda og fólksins sem ákveður. Síðasta tímabil var mitt besta hingað til og við verðum að bíða og sjá," sagði Kane.

„Fólk er með svo margar mismunandi skoðanir, svo mörg rök fyrir mismunandi leikmenn. Það sem gerir fótboltann svo sérstakan eru þessar rökæður og Ballon d'Or er klárlega ein af þeim. Ég er ánægður að ég sé í baráttunni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.