07.09.26 - 22:27
Magnús Atlason
Ian Jeffs: Þurfum að sætta okkur við eitt stig í dag
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur og Breiðablik gerðu 1-1 jafntefli í Laugardalnum í kvöld. Fótbolti.net náði tali af Ian Jeffs, þjálfara Breiðabliks, eftir leik gegn sínu gamla félagi.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 1 Breiðablik
"Ég held að þetta hafi verið sanngjörn úrslit en samt svekkjandi að missa þetta frá okkur. Það var ekkert mikið að gerast í sóknarleik Þróttar í seinni hálfleik og svo kom þessi hornspyrna og mark, svo svekktur með það."
Þróttarar voru líklegar til þess að taka öll stigin þrjú undir lok leiks. "Varstu áhyggjufullur á hliðarlínunni?"
"Já og nei, staðan var 1-1 og við vorum að reyna að skora sigurmarkið og þá opnast hjá okkur til baka líka. Að sama skapi vildum við ekki tapa leiknum og jafntefli hélt okkur á toppnum. "
Blikakonur brjóta ísinn rétt fyrir hálfleik.
"Það var mjög gott að skora þarna en seinni hálfleikurinn þróaðist eins og við þurfum að sætta okkur við eitt stig í dag."
Breiðablik endar á toppnum fyrir skiptingu, jafnar að stigum við FH. Toppliðið fær heimavallarréttinn gegn liðinu sem lendir í öðru sæti. "Þú hlýtur að vera ánægður með það?"
"Jújú ég er alveg ánægður með það en það eru fimm leikir eftir og við þurfum aðeins að fara yfir þennan leik í kvöld. Svo þurfum við bara að hugsa um næsta verkefni."
ITALIC