Fotbolti.net
07.09.26 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Daníel Tristan var nálægt því að fara en er ánægður hjá Malmö

Daníel Tristan var nálægt því að fara en er ánægður hjá Malmö
Canon

Mynd: Malmö FF

Daníel Tristan Guðjohnsen var nálægt því að yfirgefa Malmö í sumar en Daniel Kristoffersson á Aftonbladet sagði að Arminia Bielefeld í Þýskalandi hafi viljað fá hann á láni með kaupmöguleika.
Daníel Tristan: Malmö vill ekki sleppa mér
TENGT EFNI

Daníel Tristan: Malmö vill ekki sleppa mér

Erik Botheim hefur verið á undan honum í goggunarröðinni og félagið nældi í Diego Garcia. Botheim var hins vegar seldur sem opnaði pláss fyrir Daníel.

„Það er ljóst að það gerðist margt. Maður vissi ekki hvað myndi gerast en maður varð að taka einn dag í einu. Svo lengi sem maður er einhvers staðar einbeitir maður sér að því," sagði Daníel í samtali við Fotbollskanalen.

„Mér leið vel (með Bielefeld). Við seldum Erik svo þetta er bara ég og Diego. það opnar möguleika fyrir mig að fá einhverjar mínútur. Ég er ánægður hérna núna."

Daníel hefur spilað 36 leiki fyrir Malmö, skorað fimm mörk og lagt upp sex. Hann hefur aðeins byrjað einn af 11 leikjum á þessu tímabili og lagt upp eitt mark.

Heimild: Fotbollskanalen

Daníel Tristan var nálægt því að fara en er ánægður hjá Malmö
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.