Engan bilbug að finna á Grindvíkingum - „Beint upp aftur"


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Sigurður Óli er formaður fótboltadeildar Grindavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ray Anthony Jónsson er með áframhaldandi samning.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliðinn Damir Muminovic verður áfram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frítt var á alla leiki í Grindavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Auðvitað voru menn langt niðri, það er bara mjög eðlilegt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

2025 hélt Grindavík sæti sínu í lokaumferðinni, endaði þá með 21 stig sem er fjórum minna en í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

2024 endaði liði tíu stigum frá fallsæti.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Grindavík var fimm stigum frá falli 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Grindavík féll eftir jafntefli gegn Ægi í lokaumferðinni. Liðið fékk á sig fimmtu fæstu mörkin í deildinni en ekkert lið skoraði færri mörk og varð fall því á endanum niðurstaðan.
Grindvíkingar eru hvergi bangnir og setja stefnuna upp úr 2. deild á næsta ári. Fótbolti.net ræddi við Sigurð Óla Þórleifsson sem er formaður fótboltadeildar Grindavíkur.
„Það er engan bilbug á okkur að finna, það er bara áfram gang. Við trúum því að bærinn muni byggjast upp að nýju og við ætlum að vera klárir að taka á móti þegar við fáum aftur börn í bæinn. Við stefnum að því að vera með æfingar í yngri flokkum í vetur, þó það verði engir keppnisleikir. Við viljum geta boðið upp á eitthvað, þó það verði bara gamli góði innanhússboltinn. Það er bara áfram gakk, við ætlum að hoppa beint upp aftur," segir Sigurður Óli.
Tóku meðvitaða ákvörðun eftir síðasta tímabil
Grindavík var með marga erlenda leikmenn í hópnum síðustu tímabil en þeim snarfækkaði eftir síðasta tímabil.
„Við í stjórninni tókum meðvitaða ákvörðun að spila á heimamönnum eins og við gætum. Undanfarin ár höfum við verið með stóran hóp af útlendingum og það var ákveðið að draga úr því öllu, spila frekar á heimastrákum. Við vorum með einn erlendan leikmann til að hafa smá reynslu, vorum með Rafael Victor og svo skiptum við honum út fyrir Ibra þegar leið á tímabilið. Við stöndum og föllum með því. Við fórum úr því að fá á okkur þrjú og hálft mark í leik niður í eitt og hálft. Við náðum að gera helling í að stoppa lekann, en það vantaði upp á sóknarlega. Það er bara áfram veginn, beint upp aftur."
Kemur ekki til greina að hætta þessu
Það hefur ekki komið upp nein hugsun eins og „af hverju erum við að þessu?"
„Auðvitað slær þeirri hugsun oft við hvort við eigum ekki bara að hætta þessu. En svo bara slakar maður á, spjöllum saman og þá kemur það ekki til grein."
Lítil áhrif á reksturinn - Tókst vel að hafa frítt á völlinn
Hefur það áhrif á reksturinn að falla niður um deild?
„Við erum búnir að vera mjög ábyrgir og staðið í skilum við allt og alla, höfum gert það vel. Deildin stendur fínt. Við vorum með frítt á völlinn í allt sumar, vorum ekki með neinar tekjur af miðasölu. Ég reikna með því að það verði nokkuð svipað upp á teningnum á næsta ári. Rekstrarlega séð þá held ég að það verði nokkuð svipað hjá okkur."
„Það er töluverður ferðakostnaður í 2. deildinni en það getur líka orðið þannig í Lengjudeildinni ef t.d. Akureyrarliðin fara bæði niður. Við bara söfnum ef það þarf að safna."
Þessi hugmynd að hafa frítt á völlinn, finnst þér hún hafa skilað einhverju?
„Já, við erum mjög ánægðir með það. Ég er sérstaklega ánægður með stuðningsmenn gestanna, þeir hafa komið og spurt hvar sé borgað inn. Þá höfum við sagt að það sé frítt inn en okkur þætti vænt um ef þið mynduð kaupa hamborgara eða eitthvað svoleiðis. Fólk hefur tekið virkilega vel í það, kunnað að meta þetta framtak, stutt okkur og verslað í sjoppunni frekar. Það er meiri innkoma í dag en þegar við rukkuðum inn."
Hefur ofboðslega mikla þýðingu
Hvaða þýðingu hefur það fyrir ykkur að Damir Muminovic verði áfram?
„Það hefur ofboðslega mikla þýðingu. Damir er orðinn Grindvíkingur númer eitt, hann er grjótharður og er tilbúinn að gera ýmislegt fyrir okkur og bæinn. Hann er gríðarlegur leiðtogi innan sem utan vallar."
„Ef við horfum yfir síðustu tímabil þá erum við búnir að dansa við falldrauginn nokkur ár í röð. Auðvitað er ekki gott að falla, en það er raunveruleikinn og við tökumst á hann."
Sigurður segir að Grindavík sé með eina bestu aðstöðu landsins.
„Við erum með stórkostlega aðstöðu, erum búnir að semja við Haukana um að vera þar aftur í vetur eins og í fyrra. Svo erum við með frábæra aðstöðu í Grindavík á sumrin. Fyrir unga íslenska stráka er enginn sem býður upp á jafngóða aðstöðu, ég fullyrði það. Við erum með allt til alls."
Ray verður áfram þjálfari
Varðandi stöðu Ray Anthony sem þjálfara, hvernig lítur hún út?
„Bara vel, Ray er með tveggja ára samning og við styðjum áfram við bakið á honum. Það hafa verið tíð þjálfaraskipti undanfarin ár í Grindavík, við þurfum stöðugleika og það er bara áfram gakk."
Það er því ekki í kortunum að hann verði látinn fara?
„Nei, alls ekki. Það var meðvituð ákvörðun stjórnar að breyta algjörlega um kúrs, förum úr því að vera með nokkurs konar útlendingahersveit. Það var kannski nauðsynlegt að hafa hana á sínum tíma því eftir rýmingu forðuðust íslenskir leikmenn Grindavík eins og heitan eldinn í orðsins fyllstu merkingu. Við þurftum því að fá inn erlenda leikmenn til að fylla upp í liðið okkar. Núna stöndum við og föllum við með því að spila á ungum strákum. Meðalaldurinn inn á miðjunni undir lokin var 17,5 ár. Við vorum meðvitaðir um þá ákvörðun og stöndum og föllum með henni."
Snúið vörn í sókn
Grindavík féll í lokaumferðinni eftir jafntefli gegn Ægi. Sigur hefði dugað. Hvernig var andinn í mönnum fyrstu augnablik eftir lokaflaut?
„Auðvitað voru menn langt niðri, það er bara mjög eðlilegt. Menn sátu hver í sínu horni og margir grétu. Þarna voru ungir strákar inn á vellinum, eðlilegt að tilfinningarnar beri menn ofurliði. Það er líka bara jákvætt, það sýnir hvaða tilfinningar menn bera til klúbbsins og samfélagsins. Þetta á að vera sátt og vonandi færðu þá tilfinningu að þú viljir sýna og sanna að þú viljir koma liðinu aftur upp. Þetta var sárt á laugardaginn, nú eru komnir tveir dagar síðan og nú er kominn hugur í okkur hvernig við snúum vörn í sókn og förum aftur upp strax."
„Þá er virkilega gott að hafa menn eins og Damir sem gefur það bara beint út, strax skilaboð að það sé algjör óþarfi að menn séu að eyða tíma sínum í að hringja í hann," segir Sigurður Óli að lokum.

Finnst hann skulda Grindavík - „Eitthvað það versta sem ég hef gert á ævinni"

Sigurður Óli er formaður fótboltadeildar Grindavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ray Anthony Jónsson er með áframhaldandi samning.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliðinn Damir Muminovic verður áfram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frítt var á alla leiki í Grindavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Auðvitað voru menn langt niðri, það er bara mjög eðlilegt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

2025 hélt Grindavík sæti sínu í lokaumferðinni, endaði þá með 21 stig sem er fjórum minna en í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

2024 endaði liði tíu stigum frá fallsæti.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Grindavík var fimm stigum frá falli 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
