Fotbolti.net
07.09.26 - 22:20
Magnús Atlason

Jóhann Kristinn: Það er í bakheilanum að það er stórleikur framundan

Auglýsing
Jóhann Kristinn: Það er í bakheilanum að það er stórleikur framundan
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þróttur og Breiðablik gerðu 1-1 jafntefli í síðustu umferð Bestu deildarinnar fyrir skiptingu. Fótbolti.net náði Jóhanni Kristni Gunnarssyni, þjálfara Þróttar, í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 1 Breiðablik
"Náttúrulega langaði okkur að vinna leikinn en Breiðablik, mér fannst þær vera bara sterkar í þessum leik, og ég er ánægður með mitt lið að hafa ekki tapað af því að það sást mikið hungur á Breiðabliksliðinu og mér fannst við standast þetta vel."

"Ég hefði viljað halda boltanum betur og við viljum það alveg, en það er alveg sama hvað hver segir og leikmenn eiga að leggja sig fram, og þær gerðu það, en það er í bakheilanum að það er stórleikur framundan."

Breiðablik skorar undir lok fyrri hálfleiks, var það þungt?

"Það var skítamark að fá á sig, við erum alveg við það að loka á sóknina og vinna þetta og vinnum tæklingu og þurftum að gera breytingu vegna meiðsla. Það var þungt að fá þetta."

Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði liðsins, byrjaði á bekknum í dag.

"Álfa hefur verið að ströggla við smá vesen, meiðslalega séð. Það var bara gott að geta hvílt hana í dag svo að hún verður fersk og klár í bikarleikinn um næstu helgi."

Úrslit Mjólkurbikarsins fara fram um næstu helgi. "Hvernig verður undirbúningurinn öðruvísi?"

"Hann verður ekkert rosalega mikið öðruvísi. Við ætlum bara að einbeita okkur að því að eiga góða frammistöðu og eiga góðan leik eins og við höfum verið að gera undanfarið.

Sjáðu viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.