Fotbolti.net
07.09.26 - 11:06
Innkastið

„Finnst þetta gjörsamlega glatað hjá Oliver Ekroth“

Oliver Ekroth lét finna vel fyrir sér í stórleiknum gegn KR.

Oliver Ekroth lét finna vel fyrir sér í stórleiknum gegn KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rígurinn milli Víkings og KR fór upp á næsta stig í kringum toppslag liðanna í síðustu viku. Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, fór mikinn í viðtölum eftir leikinn sem endaði með 1-1 jafntefli.

Aron skaut á Víkinga og um helgina birti hann svo myndskeið á samfélagsmiðlum þar sem sést þegar Oliver Ekroth, fyrirliði Víkings, hljóp harkalega utan í hann þegar hann fagnaði marki Víkings.
Aron segir KR hafa tekið fram úr Víkingi - „Þeir eru bensínlausir og haltrandi“
TENGT EFNI

Aron segir KR hafa tekið fram úr Víkingi - „Þeir eru bensínlausir og haltrandi“

„Þetta var fautabragð hjá Oliver þarna," segir Elvar Geir í Innkastinu en svo virðist sem um klárt viljaverk hafi verið að ræða hjá varnarmanninum.

„Mér finnst þetta gjörsamlega glatað hjá Oliver Ekroth, þeir eru að skora þarna í uppbótartíma. Hann er að strá salti í sárin og ég fíla það ekki. Það eitt og sér er glatað, líka hvernig hann keyrir inn í Aron þarna. Hann hefði getað meitt hann. Hann hamrar öxlina í hann og ég dáist að því hvað Aron var rólegur. Ég hélt að Oliver væri meiri heiðursmaður en þetta," segir Valur Gunnarsson.

„Það kemur mér samt á óvart að Aron sé að pósta þessu einhverjum dögum eftir leik, ég hélt að hann væri ekki týpan í það. Ég hélt að hann myndi skilja svona hluti eftir úti á vellinum," segir Elvar.

Vísir birti myndbandið sem Aron vakti athygli á:
Aron Sigurðarson, fyrirliði KR.

Aron Sigurðarson, fyrirliði KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.