Fotbolti.net
07.09.26 - 13:53
Elvar Geir Magnússon

Mbappe eygir gullboltann - Þrír taldir líklegri til að fá hann

Mbappe vonast eftir gullboltanum.

Mbappe vonast eftir gullboltanum.

Canon

Mynd: EPA

Kylian Mbappe telur að þetta geti verið árið þar sem hann vinnur Ballon d'Or gullboltann sem besti leikmaður heims í fyrsta sinn.

Þessi 27 ára leikmaður skoraði 42 mörk í 44 leikjum fyrir Real Madrid á síðasta tímabili en liðið vann engan titil.

Hann vann svo gullskóinn á HM með 10 mörk og hefur skorað 22 mörk á HM, fleiri en nokkur annar. Frakkland endaði í fjórða sæti.
„Þegar þú spilar fyrir Real Madrid, besta félag í heimi, þá tengir fólk þig við gullboltann. Margir tala um mig og þessi verðlaun. Ég skrifaði mig í sögubækurnar í stærstu keppninni. Kannski er þetta árið mitt en fólk kýs eftir sinni sannfæringu," segir Mbappe.

„Ég hugsa alltaf um mig sem þann besta en allir eiga rétt á sinni skoðun. Þetta er árið sem ég gæti unnið Ballon d'Or en það eru blaðamennirnir sem kjósa."

Veðbankar telja að Mbappe sé fjórði líklegasti til að vinna gullboltann. Harry Kane er líklegastur en hann skoraði 61 mark í 51 leik fyrir Bayern sem vann tvöfalt í Þýskalandi. Þá skoraði hann sex mörk fyrir England á HM.

Lamine Yamal, sem vann spænska titlinn með Barcelona og HM með Spáni, er næstlíklegastur og þriðji er Rodri, samherji Yamal.
Mbappe eygir gullboltann - Þrír taldir líklegri til að fá hann
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.