Fotbolti.net
07.09.26 - 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Leiktímar í 23. og 24. umferð Bestu klárir - Akureyrarslagurinn á laugardagskvöldi

Úr leik KA og Þórs fyrr í sumar.

Úr leik KA og Þórs fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KSÍ er búið að setja niður leiktíma fyrir 1. og 2. umferðina í Bestu deildinni eftir tvískiptingu, umferðirnar sem spilaðar eru fyrir landsleikjahlé.

Öll umferðin í neðri hlutanum verður að óbreyttu spiluð á sama tíma, klukkan 14:00 á sunnudag og á sama tíma tekur KR á móti ÍA í efri hlutanum. Á sama tíma fer fram seinni leikur Fylkis og HK í undanúrslitum Lengjudeildarumspilsins.

Á mánudagskvöld tekur Víkingur svo á móti Keflavík og á þriðjudagskvöld fer Breiðablik í heimsókn í Úlfarsárdalinn, en Breiðablik spilar til bikarúrslita föstudaginn á undan.

Í 24. umferð tekur KA á móti Þór í nágrannaslag og fer sá leikur fram laugardagskvöldið 19. september. Fyrr sama dag, klukkan 14:00 að öllu óbreyttu, tekur KR á móti Víkingi í toppbaráttuslag.

Umferðinni lýkur svo daginn eftir með fjórum leikjum sem allir hefast klukkan 16:00.

Áætlað er að spila 25. umferðina 11. október, 26. umferðina 18. október og lokaumferðina 24. október en ekki er búið að skrá þá leiktíma.
23. umferðin
sunnudagur 13. september
Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-ÍA (Meistaravellir)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
14:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
14:00 Stjarnan-ÍBV (Samsungvöllurinn)

mánudagur 14. september
Besta karla - Efri hluti
19:15 Víkingur R.-Keflavík (Víkingsvöllur)

þriðjudagur 15. september
Besta karla - Efri hluti
19:15 Fram-Breiðablik (Lambhagavöllurinn)

24. umferðin
laugardagur 19. september
Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-Víkingur R. (Meistaravellir)

Besta karla - Neðri hluti
19:30 KA-Þór (Greifavöllurinn)

sunnudagur 20. september
Besta karla - Efri hluti
16:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)
16:00 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)

Besta karla - Neðri hluti
16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
KR-Víkingur mættust á Meistaravöllum í síðustu viku og þá mættu 4300 manns á völlinn samkvæmt opinberri skráningu.

KR-Víkingur mættust á Meistaravöllum í síðustu viku og þá mættu 4300 manns á völlinn samkvæmt opinberri skráningu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fram-Breiðablik fer fram eftir rúma viku þar sem Breiðablk spilar til bikarúrslita á föstudaginn kemur.

Fram-Breiðablik fer fram eftir rúma viku þar sem Breiðablk spilar til bikarúrslita á föstudaginn kemur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiktímar í 23. og 24. umferð Bestu klárir - Akureyrarslagurinn á laugardagskvöldi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.