07.09.26 - 23:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Brynjar Björn gerir ráð fyrir því að vera áfram

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Leiknir tapaði gegn ÍR í lokaumferð Lengjudeildarinnar um helgina og endaði í 6. sæti, tíu stigum frá umspilinu.
Brynjar Björn Gunnarsson tók við liðinu fyrir tímabilið og gerði tveggja ára samning. Hann sagði í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn að hann gerði ráð fyrir því að taka slaginn með liðinu næsta sumar.
„Við áttum ágætis fyrri umferð. Við missum einhvern takt um mitt mót í seinni umferðinni. Það voru þrír, fjórir leikir þar sem við hefðum viljað sækja fleiri stig. Þá hefðum við hugsanlega verið með þetta fjórum til fimm stigum meira í dag og verið að spila um það að komast í umspilið eða eitthvað slíkt, það er svo stutt á milli. Það er eitthvað við þurfum að læra af og liðið að halda fókus allt tímabilið. Það er enginn sem kemur og gefur þér eitt né neitt," sagði Brynjar.
„Við erum að reyna halda sama hóp. Það var töluverð leikmannavelta í haust og vetur, það er eitthvað sem við ætlum að sleppa við. Við erum búnir að vinna í ákveðnu hugarfari og taktík sem við getum bætt okkur í og komið sterkari inn í næsta vor."