Fotbolti.net
07.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Halli Hróðmars látinn fara frá Egersund

Haraldur Árni er farinn frá Egersund

Haraldur Árni er farinn frá Egersund

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Norska B-deildarfélagið Egersund hefur látið Marius Kjörvik Johansen og Harald Árni Hróðmarsson fara úr þjálfarateymi félagsins.
Johansen kom til Egersund sem aðstoðarþjálfari fyrir síðustu leiktíð en tók við sem aðalþjálfari í apríl. Hann hefur lagt mikla vinnu í starfið og fékk Harald inn í þjálfarateymið í maí, þar sem hann hefur reynst félaginu mikilvægur.

„Þetta var erfið ákvörðun. Félagið metur mikils vinnu og framlag bæði Mariusar og Halla. Þeir hafa báðir lagt mikinn tíma og orku í Egersund og haft mikinn metnað til að ná árangri. Því miður hafa úrslitin ekki verið nógu góð undanfarið og eftir ítarlega yfirferð telur félagið tímabært að gera breytingar,“ segir í yfirlýsingu stjórnarinnar.

Íslendingarnir Breki Baxter og Hinrik Harðarson gengu báðir til liðs við Egersund í sumar. Breki kom frá Keflavík en Hinrik frá Odd sem leikur í sömu deild.

Egersund er í 9. sæti með 29 stig þegar sex umferðir eru eftir af deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.