Fotbolti.net
07.10.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Tuchel: Kane er goðsögn í enska boltanum

Thomas Tuchel og Harry Kane

Thomas Tuchel og Harry Kane

Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, hrósaði Harry Kane í hástert eftir 3-0 sigurinn á Tékklandi í Þjóðadeildinni í gær.
Sögulegt kvöld hjá Kane - Merino skipti sköpum
TENGT EFNI

Sögulegt kvöld hjá Kane - Merino skipti sköpum

Tuchel var mjög ánægður með frammistöðu Englendinga í landsleikjaverkefninu en liðið vann þrjá af fjórum leikjum sínum í Þjóðadeildinni.

„Ég er ótrúlega ánægður. Við höfum átt gott landsleikjahlé og þetta var enn ein góð frammistaðan. Við stjórnuðum leiknum, áttum góða kafla, skoruðum falleg mörk og unnum verðskuldaðan sigur. Bæði vinnuframlagið og gæðin voru til staðar. Þetta hafa verið frábærar vikur með landsliðinu.“

Kane skoraði tvennu gegn Tékkum og jafnaði landsleikjamet Peter Shilton sem hafði staðið í meira en þrjá áratugi. Tuchel hrósaði fyrirliðanum í hástert eftir leikinn.

„Hann skilar alltaf sínu, sama hverjar aðstæðurnar eru. Það er sérstaklega ánægjulegt að hann skyldi gera það í leiknum þar sem hann jafnaði met Peter Shilton. Ef einhver þurfti frekari sönnun, sem var auðvitað óþarfi, þá sýnir hann þetta aftur og aftur. Hann átti enn einn mjög góðan leik og hefur spilað alla fjóra leikina. Hann var staðráðinn í að byrja þá alla. Svona á fyrirliði að vera og vonandi slær hann metið í næsta verkefni.“

„Ég veit ekki hvort hann sé sá besti en hann er goðsögn í enska boltanum. Vonandi helst hann heill og nær að slá metið. Hann mun verða mörgum ungmennum innblástur til að spila fótbolta og reyna að feta í fótspor hans. Hann er frábær fyrirmynd og á allt þetta hrós skilið.“


Tuchel segir næsta verkefni, í nóvember, það mikilvægasta en þá ætla Englendingar að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum.

„Næsta landsleikjahlé verður það mikilvægasta því þá þurfum við að tryggja okkur sæti í átta liða úrslitunum. Við stefnum hátt, viljum komast í undanúrslitin og spila alla tíu leikina í Þjóðadeildinni.“

„Við áttum mjög gott verkefni og fjóra góða leiki. Frammistaðan gegn Spáni var líka í hæsta gæðaflokki og við vorum mjög nálægt því að vinna en það tókst ekki. Viðbrögðin skipta mestu máli. Að vinna þrjá leiki og halda hreinu í þeim öllum, með þessum hætti, er mjög áhrifamikið og allt liðið á hrós skilið fyrir það,“
sagði Tuchel.
Kane fékk stórt hrós frá Tuchel

Kane fékk stórt hrós frá Tuchel

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.