Fotbolti.net
07.11.16 - 21:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

Aðdáendur Ara Freys mættir til Parma

Auglýsing
Ari Freyr er gríðarlega vinsæll á Ítalíu.

Ari Freyr er gríðarlega vinsæll á Ítalíu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Icelandair
Íslenska landsliðið er sem stendur í Parma á Ítalíu í undirbúningi sínum fyrir leikinn gegn Króatíu 12. nóvember næstkomandi.

Leikurinn er uppgjör toppliðanna í riðlinum en þau hafa bæði sjö stig.

Ari Freyr Skúlason á stóran aðdáendahóp á Ítalíu þar sem Skúlason, hljómar eins og blótsyrði, sem fólk í Pieve di Cento bænum í Bologna notar jafnan.

Bærinn hefur í hyggju að gera Ara Frey að heiðursborgara í bænum en stuðningsmenn Ara nýttu tækifærið og kíktu á sinn mann á æfingu í dag.

Hér má sjá myndband sem tekið var á æfingunni og má sjá að er vel mætt. Hægt er að heyra í stuðningsmönnunum kalla nafn Ara er hann labbar framhjá.

Fyrir neðan má svo sjá myndband af því þegar þeir hittu loksins hetjuna sína.


Vilja gera Ara Frey að heiðursborgara í smábæ á Ítalíu

Skúlason hátíðarhöld á Ítalíu á morgun
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.