Fotbolti.net
07.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Jay Rodríguez hættur í fótbolta

Jay Rodríguez hættur í fótbolta
Canon

Mynd: EPA

Jay Rodríguez hefur ákveðið að leggja fótboltaskóna á hilluna eftir að hafa leikið með Wrexham á síðustu leiktíð.
Rodríguez er 37 ára gamall og var mikilvægur hlekkur í liðum Burnley, Southampton, West Bromwich Albion á ferlinum.

Hann fór þrisvar sinnum upp um deild á ferlinum, tvisvar með Burnley úr Championship í ensku úrvalsdeildina og einu sinni með Wrexham upp úr League One.

Rodríguez skoraði í heildina 150 mörk í 579 leikjum á félagsliðaferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta. Þar af setti hann 46 mörk í 258 úrvalsdeildarleikjum, með þremur mismunandi félagsliðum.

Hann lék einn A-landsleik fyrir England, æfingaleik gegn Síle 2013, og einn leik fyrir U21 landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.