07.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Scaloni frystir tíuna í bili

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lionel Messi er búinn að leggja landsliðsskóna á hilluna og hefur Lionel Scaloni landsliðsþjálfari Argentínu ákveðið að bíða með að gefa öðrum leikmanni treyjunúmerið goðsagnakennda sem Messi klæddist.

TENGT EFNI
Svona lítur fyrsti landsliðshópur Argentínu án Messi út
Mario Kempes og Diego Armando Maradona gerðu tíuna fræga á sínum tíma og fengu snillingarnir Ariel Ortega og Juan Román Riquelme að klæðast henni áður en Messi fékk hana í hendurnar 2009.
Það eru ýmsir leikmenn sem gera tilkall til að klæðast tíunni, þar á meðal eru Lautaro Martínez og Julián Alvarez, en Scaloni ætlar að taka sér nægan tíma áður en hann ákveður næsta skref í samráði við argentínska fótboltasambandið.
39 ára gamall Messi lék kveðjuleik sinn fyrir Argentínu í síðasta landsleikjahléi en hann skoraði í heildina 126 mörk í 208 landsleikjum - auk þess að gefa 69 stoðsendingar.