Fotbolti.net
08.01.20 - 17:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Maguire mögulega frá út mánuðinn - Íhuga að fá mann inn á láni

Maguire mögulega frá út mánuðinn - Íhuga að fá mann inn á láni
Canon

Mynd: Getty Images

Harry Maguire er meiddur á mjöðm og gæti verið frá út mánuðinn vegna meiðslanna. Upphaflega var búist við því að hann yrði klár eftir komandi helgi.
Maguire var ekki klár fyrir leikinn gegn Manchester City í gær og lék Phil Jones með Victor Lindelöf í miðverðinum.

Maguire meiddist á meðan leik stóð gegn Wolves um liðna helgi en hélt leik áfram. Phil Jones fékk krampa í leiknum í gær og því gæti Victor Lindelöf verið eini miðvörðurinn sem verður leikfær gegn Norwich á laugardag.

Alex Tuanzebe og Eric Bailly eru að koma til baka úr meiðslum en samkvæmt heimildum ManchesterEveningNews er United að skoða möguleikann á því að fá miðvörð að láni út leiktíðina.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.