„Uppskrift með verri líkur á árangri en hjónabönd þingmanna Sjálfstæðisflokksins“

Tekinn við Manchester United.

Mynd: EPA

„Á þessari leiktíð hefur Man Utd byrjað leiki með markmanni sem Amorim keypti, hægri bakverði frá Mourinho, hafsentapari frá Solskjær og Ten Hag og vinstri bakverði frá Van Gaal. Uppskrift sem er með verri líkur á árangri en hjónabönd þingmanna Sjálfstæðisflokksins.“

Mynd: EPA

Látinn fara í upphafi landsleikjahlés.

Mynd: EPA

„Það sem mér finnst mest spennandi er kannski hvað hann lítur vel út núna kallinn, síðhærður Suður-Ameríkumaður sem mun mæta með einhverja áru inn í boðvanginn.“

Mynd: EPA

Siggi Hlö með bikar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Guðmundur Aðalsteinn, sá lærði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eysteinn Þorri er spenntur fyrir árunni hjá Pochettino.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Orri á X-inu.

Mynd: Aðsend

„Það þarf eitthvað annað að gerast en að ráða nýjan þjálfara til að eitthvað breytist til lengri tíma.“

Mynd: EPA

Tekinn við Manchester United.

Mynd: EPA
Gengi liðsins hefur verið langt undir væntingum í upphafi tímabils. Liðið situr í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni og hefur aðeins tekist að vinna þrjá af fimmtán leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.
Fótbolti.net tók púlsinn á fjórum íslenskum stuðningsmönnum Manchester United og lagði fyrir þá eftirfarandi fjórar spurningar.
1) Finnst þér ráðningin spennandi?
2) Hefðiru viljað sjá einhvern annan taka við?
3) Er Pochettino rétti maðurinn til að rétta skútuna við?
4) Fyrsta verkefni Argentínumannsins eftir ráðninguna er gegn Liverpool á Anfield, hvernig spáir þú að leikurinn fari?

Tíu stór verkefni sem bíða Pochettino hjá Man Utd
Sigurður Hlöðversson
1) Já já, spennandi og ekki spennandi. Við fylkjumst á bak við okkar fólk! Ég held að Carrick, þó svo að við elskum hann mjög mikið, að þá er hann alltof soft þjálfari.
2) Nei nei, þeir sem voru í umræðunni eru ekkert betri eða verri.
3) Amma mín gæti rétt við þessa skútu! En það þarf einhvern “geðsjúkling” eins og sagt er til að vatnsgreiða þessum mannskap.
4) Heheh, jújú held að við komum skemmtilega á óvart og vinnum 1-3.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
1) Það er erfitt að segja á þessum tímapunkti. Ég veit í raun ekki hvaða stjóri hefði verið spennandi ráðning fyrir Manchester United út frá öllu ruglinu sem hefur verið í gangi á bak við tjöldin. Pochettino hefur vissulega ákveðna áru sem er spennandi, hann er með skemmtilega hugmyndafræði og hefur áður náð góðum árangri í ensku úrvalsdeildinni.
En ráðningin á honum hefði verið meira spennandi árið 2020. Það er spurning hvort hann sé kominn yfir sitt besta skeið. Ég vona svo sannarlega að hann nái góðum árangri og ég held með honum en á sama tíma óttast ég það að hann byrji vel og muni svo missa dampinn á öðru eða þriðja tímabilinu - eins og handritið hefur verið hjá síðustu stjórum United.
2) Ég hefði verið til í Antonio Conte. Bara til þess að gera allt brjálað þarna. En stjórnarmenn United eru held ég bara hræddir við hann. Í draumaheimi hefði ég verið til í Luis Enrique en það er svo langt frá því að vera raunhæft. Unai Emery hefði líka verið skemmtilegur en ekki raunhæft þar sem hann er í meira spennandi starfi hjá Aston Villa.
3) Ég á erfitt með að sjá það í augnablikinu. Með trúðana Jason Wilcox og Omar Berrada að stjórna málunum með Sir Jim og Glazerana fyrir ofan sig, þá sé ég engan stjóra þannig séð ná að snúa þessu almennilega við. Pochettino nær líklega að bjarga okkur frá falli en ég sé hann ekki koma United aftur á toppinn. En vonandi hef ég rangt fyrir mér.
4) 0-0 eða 1-1 væru frábær úrslit. Naumt tap væri ekki heldur slæmt. Spái þessu 1-1 þar sem United heldur ekki hreinu.
Eysteinn Þorri Björgvinsson
1) Ekkert sérstaklega, þetta er kannski að gerast svona 5 árum of seint til þess að vera eitthvað rosalega spennandi. Það sem mér finnst mest spennandi er kannski hvað hann lítur vel út núna kallinn, síðhærður Suður-Ameríkumaður sem mun mæta með einhverja áru inn í boðvanginn.
2) Ég veit það ekki, af þeim kostum sem voru í umræðunni þá held ég að Poch sé klárlega skársti kosturinn framyfir menn eins og Eddie Howe og Nagelsmann.
3) Rétta skútuna við á þessu tímabili? Já en til lengri tíma nei. Það þarf eitthvað annað að gerast en að ráða nýjan þjálfara til að eitthvað breytist til lengri tíma.
4) Ég er reyndar með helvíti góða tilfiningu fyrir sunnudeginum. New manager bounce, verðum þéttir og breikum á þá. Ég segi 1-2 og stuðningsmenn munu ofpeppast.
Orri Freyr Rúnarsson
1) Ég var ekkert alltof hrifinn til að byrja með, hefði í raun helst viljað leggja félagið niður og byrja upp á nýtt. En eftir að hafa lesið meira um Poch og þá er ég orðinn ögn spenntari fyrir þessu. Ég ætla allaveganna að leyfa mér að vera spenntur þangað til við byrjum fyrsta leik í febrúar með Dalot, Martinez og Shaw í vörninni og Zirkzee sem super-sub.
2) Nei, í raun ekki. Conte hefði mögulega getað snúið þessu við til skamms tíma en hefði alltaf lent upp á kant við leikmenn, stjórnina og ræstingarfólkið á Carrington. Hefði trúlega yfirgefið félagið á verri stað en það er í dag.
Eddie Howe er bara Euroshopper útgáfan af David Moyes þannig að hann var ekki að kveikja í mér. Emery, Hurzeler og Enrique eru allir off-limits þannig að þeir komu ekki til greina. Þá var í raun bara Poch og Nagelsman eftir og ég nenni ekki þjálfara Man Utd sem klæðir sig eins og einhver á flöskuborði á Kjarval.
3) Já, algjörlega. En það sagði ég líka um Van Gaal, Mourinho, Solskjær, Ten Hag, Amorim og Carrick. Það segir mögulega meira um mig en alla þessa þjálfara. Eða bara mjög mikið um hvernig þessu félagi er stýrt og hvernig er staðið að leikmannamálum.
Ef Poch fær alvöru peninga ti að gera alvöru kaup getur hann náð árangri. Ef hann fær að kaupa einn varnarmann og svo nokkra leikmenn sem kæmust ekki í nein önnur stórlið mun þetta enda á sama stað og alltaf.
Á þessari leiktíð hefur Man Utd byrjað leiki með markmanni sem Amorim keypti, hægri bakverði frá Mourinho, hafsentapari frá Solskjær og Ten Hag og vinstri bakverði frá Van Gaal. Uppskrift sem er með verri líkur á árangri en hjónabönd þingmanna Sjálfstæðisflokksins.
Þó að ég hafi alveg trú á Poch þá býr hann ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít þannig að hann verður að fá að móta hópinn að sínum hugmyndum og það gerist ekki í einum janúarglugga.
4) Ég er ekkert mjög bjartsýnn og verð blessunarlega staddur á Anderlecht - OH Leuven þegar leikurinn fer fram. En þetta lið hefur oft spilað best þegar þeir eru komnir með bakið alveg upp að vegg. Þannig að við segjum bara 1-2 fyrir Man Utd. Dalot og Zirkzee með mörkin.

„Á þessari leiktíð hefur Man Utd byrjað leiki með markmanni sem Amorim keypti, hægri bakverði frá Mourinho, hafsentapari frá Solskjær og Ten Hag og vinstri bakverði frá Van Gaal. Uppskrift sem er með verri líkur á árangri en hjónabönd þingmanna Sjálfstæðisflokksins.“

Mynd: EPA

Látinn fara í upphafi landsleikjahlés.

Mynd: EPA

„Það sem mér finnst mest spennandi er kannski hvað hann lítur vel út núna kallinn, síðhærður Suður-Ameríkumaður sem mun mæta með einhverja áru inn í boðvanginn.“

Mynd: EPA

Siggi Hlö með bikar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Guðmundur Aðalsteinn, sá lærði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eysteinn Þorri er spenntur fyrir árunni hjá Pochettino.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Orri á X-inu.

Mynd: Aðsend

„Það þarf eitthvað annað að gerast en að ráða nýjan þjálfara til að eitthvað breytist til lengri tíma.“

Mynd: EPA
