Gallagher á lán til Man Utd? - Villa hefur áhuga á Johnson - Tottenham hefur hætt við að reyna að fá Semenyo
   sun 08. mars 2020 15:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía: Zlatan skoraði í tapi - Quagliarella hetja Sampa
Þremur leikjum er lokið í ítölsku Seríu A í dag. Leikið er fyrir luktum dyrum þessa helgina og verður það gert næstu daga og vikur.

Í fyrsta leik dagsins sigraði Spal lið Parma á úitvelli. Leikurinn átti að hefjast 11:30 en var frestað vegan 12:45 þar sem möguleiki var á að öllum leikjum dagsins yrði aflýst vegna kórónaveirunnar. Andrea Petagna skoraði sigurmarkið og kom það eftir vítaspyrnu í seinni hálfleik.

Á San Siro kom Genoa í heimsókn. Gestirnir leiddu með tveimur mörkum í hálfleik en Zlatan Ibrahimovic minnkaði muninn á 77. mínútu. Lengra komust heimamenn ekki og því fór Genoa heim með stigin þrjú.

Í Genoa tóku heimamenn í Sampdoria á móti Verona. Gestirnir komust yfir en tvö mörk frá Fabio Quagliarella í seinni hálfleik tryggðu heimasigur.

Klukkan 17:00 hefst viðureign Udinese og Fiorentina. Klukkan 19:45 hefst svo stórleikur Juventus og Inter Milan.

Milan 1 - 2 Genoa
0-1 Goran Pandev ('7 )
0-2 Francesco Cassata ('41 )
1-2 Zlatan Ibrahimovic ('77 )

Sampdoria 2 - 1 Verona
0-1 Mattia Zaccagni ('32 )
1-1 Fabio Quagliarella ('77 )
2-1 Fabio Quagliarella ('86 , víti)

Parma 0 - 1 Spal
0-1 Andrea Petagna ('71 , víti)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 15 11 0 4 34 14 +20 33
2 Milan 15 9 5 1 24 13 +11 32
3 Napoli 15 10 1 4 22 13 +9 31
4 Roma 16 10 0 6 17 10 +7 30
5 Juventus 16 8 5 3 21 15 +6 29
6 Bologna 15 7 4 4 23 13 +10 25
7 Como 15 6 6 3 19 12 +7 24
8 Lazio 16 6 5 5 17 11 +6 23
9 Atalanta 16 5 7 4 20 18 +2 22
10 Sassuolo 16 6 3 7 21 20 +1 21
11 Cremonese 16 5 6 5 18 18 0 21
12 Udinese 16 6 3 7 17 27 -10 21
13 Torino 16 5 5 6 16 26 -10 20
14 Lecce 15 4 4 7 11 19 -8 16
15 Cagliari 16 3 6 7 17 23 -6 15
16 Parma 15 3 5 7 10 18 -8 14
17 Genoa 16 3 5 8 16 24 -8 14
18 Verona 15 2 6 7 13 22 -9 12
19 Pisa 16 1 8 7 12 22 -10 11
20 Fiorentina 16 1 6 9 17 27 -10 9
Athugasemdir
banner