Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. apríl 2021 20:20
Aksentije Milisic
Vestergaard er aðal skotmark Tottenham í sumar
Mynd: Getty Images
Jannik Vestergaard, miðvörður Southampton, er aðal skotmark Tottenham á félagsskiptamarkaðnum næsta sumar.

Jose Mourinho, sem er kominn undir töluverða pressu hjá Tottenham, vill styrkja varnarlínuna hjá sér og þar er Daninn efstur á blaði.

Tottenham féll óvænt úr leik í Evrópudeildinni á dögunum og þá hafði félagið gefið töluvert eftir í deildinni á nýju ári. Félagið á þó enn góðan möguleika á að ná Meistaradeildarsæti.

Mourinho er byrjaður að pressa á stjórn Tottenham fyrir sumarið og vill hann fá Vestergaard til liðsins fyrir næsta tímabil.

Vestergaard hefur verið lykilleikmaður hjá Southampton á þessu tímabili og þá hefur hann einnig verið að spila mjög vel með danska landsliðinu.

Southampton var í sjöunda sæti deildarinnar þegar Vestergaard meiddist á hné og í kjölfarið hrundi leikur liðsins.

Mourinho hafði áhuga á að fá Milan Skriniar, varnarmann Inter Milan, en það tókst ekki að koma því í gegn í janúar glugganum.
Athugasemdir
banner
banner
banner