„Sýnir hvað Stjarnan er að vinna gott starf"
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er bara fínt, þetta er betra en í fyrra minnir mig og ef þetta gengur eftir þá erum við í þessum efri hluta þegar deildinni verður skipt upp. Þar vilja öll lið vera," sagði Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, í viðtali við Fótbolta.net í dag.
Tilefni viðtalsins var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en Stjörnunni er spáð 6. sætinu í ár.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 6. sæti: Stjarnan
„Nei, þetta kemur mér ekki á óvart. Það vita flestir hvernig tímabilið í fyrra gekk og þetta kemur ekkert á óvart."
„Hópurinn er mjög flottur, það eru flest allir heilir og þeir sem hafa eitthvað glímt við meiðsli eru að koma til baka og eru nokkuð frískir. Fyrir utan þetta mikla áfall að missa Hilmar Árna út, það er alveg hræðilegt fyrir okkur. Í staðinn verða aðrir að stíga upp," sagði Halli en Hilmar Árni sleit krossband í vetur.
Stjarnan er með marga unga og efnilega leikmenn og nokkra af þeim í unglingalandsliðunum.
„Við vorum með fimm leikmenn sem voru í verkefnum í mars og örugglega tveir í viðbót sem hefðu verið ef menn hefðu ekki verið í meiðslum. Það sýnir hvað Stjarnan er að vinna gott starf og það er mjög gaman að vera inn í þessum klefa. Þessir gormar halda manni ungum með alls konar vitleysu. Þetta eru mjög metnaðarfullir strákar og vilja bæta sig. Það er mjög gaman að þeim."
Hver er ruglaðastur af þeim?
„Þessi TikTok kynslóð er öll frekar rugluð. Þetta eru allt hreinir og beinir strákar, engir vitleysingar og maður hefur mjög gaman að þeim," sagði Haraldur.
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan og á öllum hlaðvarpsveitum