Fotbolti.net
12.06.26 - 22:26
Magnús Atlason

Venni: Frábært að geta sett hann inn á

Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Þróttur tók á móti HK í fyrsta leik 9. umferðar Lengjudeildarinnar og unnu sannfærandi 2-0 sigur. Fótbolti.net náði viðtali við Sigurvin Ólafsson þjálfara Þróttar eftir leikinn.
Venni var heilt yfir sáttur með leikinn.

"Mjög ánægður með sigurinn og sérstaklega ánægður með góða spilamennsku."

Leikurinn róaðist eftir að Þróttarar komust í 2-0.

"Það kom færi þar sem við skjótum örugglega 4-5 sinnum en hann ver þetta allt saman þannig að við hefðum getað aflíft þennan leik aðeins fyrr. Þeir fengu sín löngu innköst og horn þannig að maður er aldrei alveg rólegur en ég var mjög sáttur við bæði vörn og sókn."

Örn Bragi kemur inn á og hefur strax áhrif á leikinn. Venni var spurður hvaða áhrif það hefur á liðið að hafa svona marga uppalda leikmenn.

"Það er æðislegt, það er þetta hjarta sem geislar frá þeim og auðvitað gæði líka, þetta eru góðir leikmenn. Örn Bragi byrjar á bekknum í dag, ekki af því að hann hefur spilað eitthvað illa, ég er bara aðeins að velta liðinu. Örn Bragi búinn að spila mjög vel upp á síðkastið og það er frábært að geta sett hann inn á."

Þróttur á Ægi í næstu umferð.

"Það verður allt annar leikur. Það verður á grasi gegn öguðu liði sem er hættulegt á grasinu heima hjá sér. Við tökum þessu alvarlega og reiknum með hörkuleik."

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.