Breiðablik tryggði sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í dag með 3-0 sigri á Ægir í Þorlákshöfn.
Þetta var fyrsti leikur Breiðabliks eftir landsleikjahléið og Ólafur Ingi Skúlason að sjálfsögðu sáttur með dagsverkið.
Lestu um leikinn: Ægir 0 - 3 Breiðablik
„3-0 sigur bara fínasta dagsverk" spurði undirtitlaður í viðtali við Ólaf Inga eftir leik.
„Já, held það sé rétt orðað. Gerðum þetta mjög fagmannlega, strákarnir flottir og tóku verkefninu mjög alvarlega. Kannski ekki fallegasti fótboltaleikurinn þó að grasvöllurinn sé ágætur þá var hann alveg vel þurr. Við gerðum þetta vel og vorum skynsamir."
Tvær vikur voru frá síðasta leik Breiðabliks sem var 4-3 tap gegn Fram í Bestu Deildinni. Spurður hvort það hafi haft áhrif á leikinn svaraði Ólafur Ingi: „Það hefur gefið okkur tíma til að vinna í hlutum sem er jákvætt. Svo sem alveg sammála þér að það er hellings óvissa, langt síðan menn spiluðu og þá mögulega detta menn úr "rhythma". En eins og ég segi bara mjög ánægður með dagsverkið."
Leikmannamál Breiðabliks, meðal annars fjarvera Ásgeirs Helga var næsta spurning sem Ólafur Ingi svaraði. „Hann (Ásgeir Helgi) er veikur, búin að vera síðustu fjóra daga þannig hann gat ekki tekið þátt. Viktor Örn náttúrulega í banni. Arnór Gauti kom inn í miðvörðinn sem hann þekkir svo sem alveg og leysti það af listavel."
Um Arnar Bjarka sem hefur sterklega verið orðaður við Bröndby en þarf að vera orðinn 16 ára sem hann verður í Nóvember hafði Ólafur Ingi þetta að segja. „Það verður bara að koma í ljós. Búin að standa sig frábærlega vel og verður með okkur allavega út tímabilið".
Næsti leikur Breiðabliks er gegn Stjörnunni á þriðjudaginn og spurður hvort möguleg þjálfara skipti hjá Stjörnunni geti haft áhrif á upplegg Blika hafði Ólafur Ingi þetta að segja. „Nei, við hugsum bara um okkur og þurfum að vera tilbúnir í þann leik. Hugsa vel um líkama og sálina næstu daga, það er stutt á milli. Fókuserum bara á okkar leik fyrst og fremst."




