Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 18:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Umboðsmaður Salah: Ræðum ekki viðkvæmar framtíðaráætlanir
Mynd: EPA
Ramy Abbas Issa, umboðsmaður Mohamed Salah, gefur ekkert upp um framtíð Egyptans.

Salah, sem er orðinn 34 ára, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool en samningurinn hans rennur út um mánaðarmótin.

Einhverjar sögusagnir hafa verið um að hann væri á leið til tyrkneska félagsins Fenerbahce en Issa gefur ekkert upp.

„Salah líður fullkomlega vel og hvorki hann né ég ætlum að ræða viðkvæmar framtíðaráætlanir við fólk sem tengist þeim ekki. Þetta er einkamál milli okkar. Fólk gæti spurt og þau fá venjulegt kurteisislegt svar um það," sagði Issa.
Slapp
banner
banner