Kanada 1 - 1 Bosnía Hersegóvína
0-1 Jovo Lukic ('21 )
1-1 Cyle Larin ('78 )
0-1 Jovo Lukic ('21 )
1-1 Cyle Larin ('78 )
Kanada og Bosnía og Hersegóvína skildu jöfn í fyrsta leik sínum á HM. Gestgjafarnir í Kanada hefur ekki enn unnið leik á heimsmeistaramóti en þetta er þriðja sinn sem liðið keppir á mótinu.
Kanada byrjaði leikinn betur og Jonathan David fékk úrvalsfæri til að koma liðinu yfir en skot hans nokkuð þægilegt fyrir Nikola Vasilj í marki Bosníu.
Bosnía náði forystunni þvert gegn gangi leiksins þegar Sead Kolasinac, fyrirliði liðsins, flikkaði boltanum inn á markteiginn eftir hornspyrnu og Jovo Lukic kom boltanum í netið.
Kanada var hársbreidd frá því að jafna metin snemma í seinni hálfleik en Kolasinac kom stórkostlega í veg fyrir það. Richie Laryea komst í gegn og átti skot en Kolasinac bjargaði á síðustu stundu og setti boltann í slá og út.
Bosnía bjargaði aftur á línu þegar Nikola Katic skallaði boltann frá.
Kanada tókst loksins að brjóta ísinn eftir laglegt samspil. Boltinn endaði hjá Cyle Larin sem skoraði með skoti í vítateignum. Larin var nýkominn inn á sem varamaður.
Kanada var nálægt því að næla í öll stigin í blálokin en Tarik Muharemovic komst fyrir skot Larin og jafntefli var niðurstaðan.
Liðin deila því með sér stigum og Kanada bíður enn eftir sínum fyrsta sigri á HM. Sviss og Katar mætast annað kvöld í sama riðli.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



