Fotbolti.net
12.06.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Með kærustunni á Ibiza þegar hann var kallaður á HM

Símtalið sem hann vonaðist eftir.

Símtalið sem hann vonaðist eftir.

Canon

Mynd: Instagram/Skjáskot

Argentínski miðvörðurinn Marcos Senesi hjá Bournemouth var í gær kallaður inn í argentínska landsliðið í stað Leo Balerdi sem er meiddur.

Senesi var staddur á nautnaeyjunni Ibiza með kærustu sinni þegar símtalið kom. Þau voru á leiðinni út að borða.

Kærasta hans, Kelci Bowers, segir að þau hafi verið meðvituð um að varnarmaður hefði meiðst og símtalið gæti komið. Þegar kallið á HM kom fögnuðu þau gríðarlega eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Senesi er 29 ára gamall og hefur spilað frábærlega með Bournemouth síðustu ár. Hann á þrjá A-landsleiki með Argentínu, en lék sinn fyrsta landsleik árið 2022.

Argentína er með Austurríki, Alsír og Jórdaníu í riðli á HM.
Senesi kallaður inn í argentínska landsliðið
TENGT EFNI

Senesi kallaður inn í argentínska landsliðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.