Hátíð í Árbænum fyrir bikarleik Fylkis og Gróttu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikil stemning verður í Árbænum á morgun þegar Fylkir tekur á móti Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla. Um er að ræða mikilvægan leik þar sem sæti í undanúrslitum keppninnar er undir.
Félögin leika bæði í Lengjudeildinni og má því búast við hörkuleik á Tekk vellinum þegar flautað verður til leiks klukkan 14:00.
Í tengslum við leikinn standa félögin fyrir leikdagshátíð á Tekk vellinum sem opnar klukkan 12:00, rúmum tveimur tímum fyrir upphafsflaut. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir gesti á öllum aldri.
Á meðal þess sem verður í boði er fanzone í norðurenda stúkunnar þar sem stuðningsfólk beggja liða getur komið saman fyrir leik. Börnin geta skemmt sér í hoppuköstulum og frá klukkan 13:00 mun trúbador hita upp stemninguna fyrir bikarslaginn.
Þá verða íspinnar frá Emmessís og kókómjólk frá Mjólkursamsölunni í boði á meðan birgðir endast. Einnig verður fjölbreytt úrval veitinga til sölu, þar á meðal hamborgarar, drykkir, candyflos, kaffi, kleinur og annað góðgæti.
Veðurguðirnir virðast einnig ætla að leggja sitt af mörkum en spáð er allt að 17 stiga hita og sólskini á morgun og verða aðstæður því með besta móti fyrir fjölskyldur og knattspyrnuáhugafólk sem hyggur á heimsókn á Tekk völlinn.
Allt stefnir því í skemmtilegan leikdag þar sem bikarbarátta, góð skemmtun og sumarveður fara saman á einum stærsta leik liðanna það sem af er sumri."
FB event má finna hér.