Fotbolti.net
12.06.26 - 21:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Toppliðið í góðum gír

Magnús Þórðarson

Magnús Þórðarson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Þróttur R. 2 - 0 HK
1-0 Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('14 )
2-0 Magnús Þórðarson ('68 )
Lestu um leikinn
Þróttur fékk HK í heimsókn í Lengjudeildinni í kvöld. Sigurður Egill Lárusson fékk tvö góð færi strax í upphafi leiks en tókst ekki að koma Þrótturum á blað.

Þróttur komst hins vegar yfir eftir stundafjórðung þegar Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson skoraði laglegt mark. Magnús Þórðarson var nálægt því að bæta við marki snemma í seinni hálfleik en setti boltann yfir eftir að Ólafur Örn Ásgeirsson varði boltann út í teiginn.

HK fékk góð tækifæri strax í kjölfarið en staðan hélst óbreytt.

Magnús tvöfaldaði forystu Þróttar með góðu skoti eftir sendingu frá Erni Braga Hinrikssyni. HK hefði getað minnkað muninn undir lokin eftir darraðadans inn á teig Þróttar en þeim tókst að koma boltanum frá að lokum.

Nær komust þeir ekki og sigur Þróttar staðreynd. Þróttur er á toppnum með 19 stig, þremur stigum á undan Aftureldingu sem á leik til góða. HK er í 4. sæti með 15 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.9+1119
2Afturelding8+816
3Fylkir8+215
4Leiknir R.9+215
5HK9015
6Vestri9-113
7Grótta7-112
8Njarðvík9+311
9Grindavík7-27
10Ægir8-57
11ÍR8-67
12Völsungur9-115
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.