Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 12:59
Kári Snorrason
Tímaspursmál hvenær Amin fer út - Sá dýrasti í sögunni?
Líklegra en ekki að Amin fari til Noregs.
Líklegra en ekki að Amin fari til Noregs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Komið að fimm mörkum með beinum hætti.
Komið að fimm mörkum með beinum hætti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mikill áhugi erlendis frá er á Amin Cosic og er samkvæmt heimildum Fótbolta.net einungis tímaspursmál um hvenær hann verður seldur út.

Mörg lið eru á höttunum á eftir Amin en Viking, Molde, Bodö/Glimt, FC Thun og Gautaborg ásamt fleiri liðum í Svíþjóð hafa sýnt leikmanninum áhuga.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður Amin einn dýrasti leikmaður sem keyptur hefur verið frá Íslandi.

Fótbolti.net fjallaði um það fyrir nokkrum vikum að þjálfari Viking hefði mætt og horft á Amin gegn Blikum. KR tapaði leiknum 6-3 en Amin skoraði úr vítaspyrnu.

Uppfært 13:50
Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Amin, staðfestir í samtali við Fótbolta.net að hann sé í viðræðum við félag um persónuleg kaup og kjör leikmannsins.

Þessi tvítugi kantmaður hefur komið með beinum hætti að fimm mörkum í Bestu deildinni, lagt upp eitt og skorað fjögur. Hann var keyptur til KR frá Njarðvík síðasta sumar en hann er uppalinn í HK.
Slapp
banner
banner
banner