Fotbolti.net
12.06.26 - 17:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Byrjunarlið Kanada og Bosníu: Stjörnurnar ekki klárar

Edin Dzeko

Edin Dzeko

Canon

Mynd: EPA

Kanada hefur leik á heimavelli á heimsmeistaramótinu í kvöld þegar liðið mætir Bosníu og Hersegóvínu. Leikurinn fer fram í Toronto.

Það eru stór skörð hoggin í bæði lið en stjörnur beggja liða eru að berjast við meiðsli og geta ekki byrjað.

Alphonso Davies, leikmaður Bayern, er meiddur aftan í læri og getur ekki spilað fyrir Kanada. Jonathan David, leikmaður Juventus, er í fremstu víglínu.

Þá er Edin Dzeko, leikmaður Schalke og fyrrum leikmaður Man City, Roma og Inter, ekki klár í að byrja hjá Bosníu þar sem hann hefur verið að kljást við meiðsli á öxl.
Kanada í leit að sínum fyrsta sigri á HM
TENGT EFNI

Kanada í leit að sínum fyrsta sigri á HM

Kanada: Crepeau; Johnston, De Fougerolles, Cornelius, Laryea; Estaquio, Kone, Millar; David, Oluwaseyi, Buchana

Bosnía: Vasilj; Dedic, Muhamerovic, Katic, Kolasinac; Tahirovic, Basic, Memic; Demirovic, Bajraktarevic, Lukic
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.