Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er búið að segja Jökli Elísabetarsyni upp störfum sem þjálfara Stjörnunnar.
Búist er við því að félagið tilkynni um tíðindin á næstu klukkutímum.
Jón Þór Hauksson hefur verið nefndur sem mögulegur arftaki Jökuls og eru sögusagnir um að hann muni stýra liðinu út tímabliið.
Búist er við því að félagið tilkynni um tíðindin á næstu klukkutímum.
Jón Þór Hauksson hefur verið nefndur sem mögulegur arftaki Jökuls og eru sögusagnir um að hann muni stýra liðinu út tímabliið.
Stigasöfnun Stjörnunnar hefur verið langt undir væntingum í upphafi tímabils en liðið situr í níunda sæti Bestu deildarinnar með tíu stig eftir tíu umferðir.
Þá féll Stjarnan úr leik í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins á miðvikudaginn gegn Aftureldingu.
Jökull hefur stýrt Stjörnunni í rúm þrjú ár sem aðalþjálfari en þar áður var hann aðstoðarmaður Ágústs Gylfasonar hjá liðinu í tæp tvö ár.



