Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 12. júní 2026 19:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Bosnía komst yfir gegn gangi leiksins
Mynd: EPA
Bosnía er komið með forystuna gegn Kanada í Toronto í fyrsta leik liðanna á HM.

Kanadamenn byrjuðu leikinn betur á heimavelli. Jonathan David nagar sig í handabökin að hafa ekki skorað þegar hann fékk úrvalsfæri en skotið nokkuð beint á Nikola Vasilj i marki Bosníu.

Bosnía náði forystunni eftir tuttugu mínútna leik eftir hornspyrnu.

Sead Kolasinac flikkaði boltanum inn á markteiginn og Jovo Lukic þurfti bara að ná smá snertingu á boltann til að koma honum yfir línuna.

Sjáðu markið hér


Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner