Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 12. júní 2026 17:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Partey ekki hleypt inn í Kanada
Thomas Partey. Hann verður ekki með Gana í fyrsta leik liðsins á HM í næstu viku.
Thomas Partey. Hann verður ekki með Gana í fyrsta leik liðsins á HM í næstu viku.
Mynd: EPA
Partey í leik með Gana.
Partey í leik með Gana.
Mynd: EPA
Thomas Partey mun ekki geta spilað í fyrsta leik Gana á HM þar sem hann fær ekki leyfi til að fara inn fyrir landamæri Kanada.

Partey er 32 ára fyrrum leikmaður Arsenal en hann leikur nú fyrir Villarreal á Spáni. Partey jefur mikið verið í fréttum undanfarin ár þar sem hann hefur verið sakaður um nauðganir og kynferðisbrot af fjórum konum.

Á vef kanadískra stjórnvalda kemur fram að einstaklingum sem hafa framið eða verið sakfelldir fyrir glæp kunni að vera meinaður aðgangur að landinu. Partey hefur verið ákærður en bíður enn réttarhalda og hefur ekki verið sakfelldur. Hann fær samt sem áður ekki vegabréfsáritun til að komast inn í landið.

Gana spilar sinn fyrsta leik á HM gegn Panama í Toronto þann 17. júní næstkomandi og er núna ljóst að Partey verður ekki með í þeim leik.

Gana er líka með Englandi og Króatíu í riðli en þeir leikir verða báðir í Bandaríkjunum. Gana hefur verið í æfingabúðum í Bandaríkjunum og því ljóst að Partey getur spilað í þeim leikjum.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp