Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 19:20
Ívar Björgvinsson
Byrjunarlið ÍA og Víkings: Gylfi á bekknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Vatnhamar er ekki í hóp í kvöld.
Gunnar Vatnhamar er ekki í hóp í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markaskorarinn fær traustið.
Markaskorarinn fær traustið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

8-liða úrslit Mjólkurbikars karla halda áfram í kvöld en leikur ÍA og Víkings fer fram á ELKEM vellinum og byrjunarliðin eru komin inn.


Lestu um leikinn: ÍA 0 -  0 Víkingur R.

Sölvi gerir tvær breytingar frá 1-5 stórsigrinum gegn Val en sá leikur fór fram fyrir landsleikjahlé þann 31. maí. Gunnar Vatnhamar og Gylfi Sig fara út úr byrjunarliðinu en þeir voru báðir að koma úr landsliðsverkefnum. Gylfi tekur sér sæti á bekknum en Gunnar er ekki í hóp hér í kvöld. Inn í stað þeirra koma Sveinn Gísli Þorkelsson og Tarik Ibrahimagic. Þess má geta að Ögmundur Kristinsson er kominn á bekkinn en hann gekk til liðs við Víking fyrir nokkrum dögum.

Lárus Orri gerir aðeins eina breytingu á sínu liði frá 0-1 sigrinum á FH en út fer Viktor Jónsson og inn í hans stað kemur Ómar Björn Stefánsson. Ómar Björn kom einmitt inn fyrir Viktor í leiknum gegn FH og skoraði eina mark leiksins og hann fær traustið í dag.


Byrjunarlið ÍA:
37. Jón Sölvi Símonarson (m)
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
8. Guðmundur Þórarinsson
11. Gísli Eyjólfsson
13. Erik Tobias Sandberg
21. Böðvar Böðvarsson (f)
22. Ómar Björn Stefánsson
25. Markús Páll Ellertsson
66. Jón Gísli Eyland Gíslason

Byrjunarlið Víkingur R.:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
4. Oliver Ekroth (f)
9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson
19. Óskar Borgþórsson
20. Tarik Ibrahimagic
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson
69. Ármann Ingi Finnbogason
Slapp
banner