Vandræði Liverpool héldu áfram í kvöld þegar liðið tapaði 2-0 gegn PSG á útivelli í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Arne Slot gerði breytingar á leikkerfinu og var með fimm manna varnarlínu. Hann hafði hugsað sér að Jeremie Frimpong myndi hjálpa til í vörninni en vera á hægri kantinum í sókninni. Hann var hins vegar ósjáanlegur í sókninni.
Arne Slot gerði breytingar á leikkerfinu og var með fimm manna varnarlínu. Hann hafði hugsað sér að Jeremie Frimpong myndi hjálpa til í vörninni en vera á hægri kantinum í sókninni. Hann var hins vegar ósjáanlegur í sókninni.
Arnar Gunnlaugsson og Atli Viðar Björnsson voru sérfræðingar í settinu á Sýn Sport eftir leikinn.
„Nei, þetta hefði átt að enda sex eða sjö núll. Ég veit ekki hvað ég á að segja eftir þennan leik. Hluti af mér finnur fyrir sorg út af því ég hef aldrei séð Liverpool spila jafn illa," sagði Arnar.
„Ég hef aldrei séð Liverpool fórna sinni langri sögu og gildum í einum leik. Aldrei séð þá spila fimm manna línu allan leikinn, ekki eiga eina góða pressu, eiga 2-3 skot og engin stór tækifæri. Þetta var rosalega erfitt fyrir United manninn að kyngja þessu því Liverpool hefur alltaf verið kynþokkafullt og flott lið en þetta var til skammar þessi frammistaða. Hún var ömurleg frá A-Ö."
„Það er oft sagt í fótboltanum að það reynir ekki á hvað þú stendur fyrir nema þegar illa gengur. Ég man fyrir nokkrum árum þegar öll varnarlína Klopp meiddist en við sáum hann aldrei vera svona örvæntingarfullur," sagði Arnar að lokum.
Atli Viðar sagði að Slot hafi verið örvæntingafullur og ráðalaus miðað við uppleggið í leiknum.


