Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
Bestur í Mjólkurbikarnum - Kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Axel Óskar: Við erum miklu stærra lið samt
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
„Hann er uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig til þess að ná langt"
Jóhann Árni: Tilfinningar brutust út
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Aron Baldvin: Vissum að við myndum fá bestu útgáfuna af þeim
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
   mið 08. apríl 2026 17:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Sölvi vann titilinn á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari.
Sölvi vann titilinn á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Við þurfum að gera meira en við gerðum í fyrra til þess að ná okkar markmiðum'
'Við þurfum að gera meira en við gerðum í fyrra til þess að ná okkar markmiðum'
Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson
„Við erum spenntir, búnir að vera bíða eftir þessu lengi. Undirbúningstímabilið er langt, sólin er alltaf að fara hærra og fótboltatímabilið er að byrja. Það er mikil tilhlökkun," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Íslandsmeistaranna í Víkingi, þegar tveir dagar eru í opnunarleik Bestu deildarinnar.

Á föstudag tekur Víkingur á móti Breiðablik og þá hefst deildin. Víkingum er spáð toppsætinu í öllum spám og segir Sölvi að skotmarkið á þeim sé stærra en það var fyrir síðasta tímabil.

„Það er alltaf þannig að öll lið vilja meistarana frá síðasta sumri. Skotmarkið er stærra. Það gefur liðunum auka innspýtingu að keppa á móti okkur. Við höfum lent í því og við þurfum að vera meðvitaðir um það. Þetta byrjar allt á æfingasvæðinu, hvernig menn leggja sig fram þar, við þurfum að gera meira en við gerðum í fyrra til þess að ná okkar markmiðum. Byrjunin er að vera meðvitaður um það til þess að geta gert það," segir Sölvi Geir.

„Það er mjög skemmtilegt að mæta Blikum í fyrsta leik, óvanalegt að sjá þessi tvö lið mætast í fyrstu umferð, en það er bara skemmtilegt. Byrjum deildina af alvöru krafti."

Undirbúningstímabilið var styttra á fyrsta ári Sölva sem aðalþjálfari því Víkingur spilaði í Sambandsdeildinni í febrúar í fyrra. „Það var áskorun og maður sá það í byrjun móts að við vorum ekki alveg upp á okkar besta. Ég veit ekki hvort að ég hafi ekki verið að gera nógu góða hluti eða hvort tímabilið á undan hafi setið í mönnum. Það lukkaðist allt í endann."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl>
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner