Fotbolti.net
08.04.26 - 14:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gylfi reynir að æfa í dag

Gylfi Sig

Gylfi Sig

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Þór Sigurðsson mun æfa í dag og gæti spilað gegn Breiðabliki í opnunarleik Bestu deildarinnar á föstudag. Gylfi fór af velli gegn Fram í Mjólkurbikarnum síðasta laugardag.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, ræddi við Fótbolta.net á kynningarfundi Bestu deildarinnar í dag.
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
TENGT EFNI

Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“

„Gylfi ætlar að reyna æfa í dag, fulla æfingu. Við þurfum að sjá til hvernig hann kemur út úr henni," segir Sölvi.

Nikolaj Hansen, framherji Víkings, var ekki í hópnum gegn Fram. „Niko er búinn að vera æfa vel og er í lagi. Við hefðum getað 'pushað' Niko í síðasta leik en fannst það óþarfi. Við erum með sterkan og góðan hóp og leikmenn í hverri stöðu sem eru tilbúnir að hoppa inn. Elías (Már Ómarsson) gerði það mjög vel í síðasta leik."

„Það eru allir aðrir klárir nema Daði Berg (Jónsson), það er töluverður tími í hann. Annars eru allir klárir á æfinguna á eftir. Það eru nokkrir leikmenn sem við þurfum að sjá til með hvernig þeir koma út úr æfingunni,"
segir Sölvi. Viðtalið í heild verður birt á síðunni seinna í dag.
Nikolaj Hansen

Nikolaj Hansen

Canon

Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson

Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.