Fotbolti.net
08.05.17 - 22:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Óli Jó: Það kom smá panikk í okkur

Auglýsing
Ólafur var ánægður með sigur sinna manna.

Ólafur var ánægður með sigur sinna manna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

„Ég held að öll lið geti verið sátt með það (að fara með stig af Akranesi),\" sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, eftir 4-2 sigur á ÍA í skemmtilegum fótboltaleik í kvöld.

Valur stjórnaði ferðinni og var alltaf yfir. Þeir voru sterkari aðilinn í leiknum og áttu sigurinn skilið.
„Við byrjum leikinn feiknavel og fengum urmul af færum, en það var smá basl að koma boltanum í netið,\" sagði Óli.

„Eftir að þeir skoruðu þá kom smá panikk í okkur, en svo náðum við að stilla okkur af. Leikurinn var aldrei í hættu.\"

Valur er á toppi deildarinnar eftir tvo leiki. Þeir eru eina liðið sem búið er að vinna báða leiki sína og stefnan er sett á að halda áfram.

„Við erum feiknaánægðir með byrjunina, en það er mikið eftir. Við erum ekki búnir að vinna neitt, það er nóg eftir af mótinu.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.