Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 08. maí 2026 10:30
Kári Snorrason
Gætu hagnast á því að tapa gegn Liverpool
Aston Villa þarf að vinna Evrópudeildina og að lenda í 5. sæti til að tryggja sjötta Meistaradeildarsæti Englands.
Aston Villa þarf að vinna Evrópudeildina og að lenda í 5. sæti til að tryggja sjötta Meistaradeildarsæti Englands.
Mynd: EPA
Sjötta Meistaradeildarsætið virðist færast nær Englandi eftir að Aston Villa tryggði sér í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í gær með stórsigri á Nottingham Forest.

Ef Aston Villa endar í fimmta sæti og vinnur Evrópudeildina, þá tryggir sjötta sætið í ensku úrvalsdeildinni sæti í Meistaradeildinni.

Ef Aston Villa endar í fjórða sæti fær England ekki sjötta Meistaradeildarsætið. Villa situr nú í fimmta sæti deildarinnar með 58 stig eins og Liverpool sem er með betri markatölu.

Sú staða gæti komið upp að Brentford verði búið að tryggja sér sjötta sætið fyrir lokaumferðina í ensku úrvalsdeildinni.

Í lokaumferðinni mætir liðið Liverpool og gæti tap tryggt þeim Meistaradeildarsæti ef það þýðir að Aston Villa myndi enda í fimmta sæti.

Brighton mætir United í lokaumferðinni og gæti liðið jafnframt hagnast á því að tapa ef þeir höfðu tryggt sér sjötta sæti. Þá þyrfti sigur United að verða til þess að liðið endaði fyrir ofan Aston Villa, þannig að Villa færi niður í fimmta sætið. Það er þó fjarstæðukenndari sviðsmynd.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner