Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fös 08. maí 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Vill halda Palhinha áfram hjá Tottenham
Joao Palhinha
Joao Palhinha
Mynd: EPA
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham á Englandi, vill halda portúgalska miðjumanninum Joao Palhinha áfram hjá félaginu á næsta tímabili.

Palhinha er á láni hjá Tottenham frá Bayern München, en átti stórleik þegar liðið vann mikilvægan sigur á Aston Villa um síðustu helgi.

Portúgalinn hefur spilað 42 leiki á tímabilinu og komið að níu mörkum. Aðeins þrír útileikmenn hafa spilað fleiri mínútur en hann með Tottenham á leiktíðinni og mikilvægi hans því gríðarlegt.

De Zerbi vill halda honum áfram hjá Tottenham á næstu leiktíð, en hann segir mikilvægt að hafa karakter eins og Palhinha í hópnum.

„100 prósent. Við verðum að byrja á svona týpum af fólki. Við þurfum fyrst og fremst traustar manneskjur og fótboltamenn sem við getum treyst á.

„Palhinha er einn af þeim bestu. Sem leikmaður er það klárt mál, en líka sem maður. Ég vil sjá leikmennina með sömu ástríðu, anda, persónuleika og við erum bara ótrúlega heppnir að hafa hann með okkur,“
sagði De Zerbi.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner