Fotbolti.net
26.06.26 - 19:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu mörkin: Frakkar og Senegalar í bílstjórasætinu

Sjáðu mörkin: Frakkar og Senegalar í bílstjórasætinu
Canon

Mynd: EPA

Lokaumferðin í I-riðli á HM er komin á fulla ferð. Frakkar náðu forystunni gegn Norðmönnum á sjöundu mínútu þegar Ousmane Dembele skoraði.

Kylian Mbappe kom boltanum út á kantinn á Dembele sem kom sér inn á teiginn og skoraði með skoti í fjærhornið. Sjáðu markið hér. Liðin keppast um toppsætið í riðlinum.

Dembele er búinn að skora aftur og Thelo Aasgaard minnkaði muninn strax í kjölfarið.
Habib Diarra kom Senegal yfir eftir skalla frá Abdoulaye Seck að marki gegn Írak á fjórðu mínútu og Írak varð fyrir enn meira áfalli þegar Rebin Sulaka var rekinn af velli með rautt spjald.

Senegal kemst áfram með sigri og Skotland er á leið heim eins og staðan er. Sjáðu markið hér



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.